Ut – Re – Mi – Fa – Sol – La
396hz - 417hz - 528hz - 630hz - 741hz - 852hz
Upprunalegu Solfeggio nóturnar eru sagðar hafa heilandi áhrif. Hver nóta hefur tíðni með mismunandi víbring og þar með eiginleika. Nóturnar hafa endurtekið mynstur. Mynstrið líkist náttúrulegu stærðfræðilögmáli alheimsins.
Þessi svo kölluðu heilandi áhrif hafa verið sögð deyfa langvarandi verki, draga úr þunglyndi og bæta vellíðan. Aðrir hafa sagt nóturnar hafa hjálpað við tilfinningaleg áföll, að opna huga fyrir betra innsæi og jafnvel hjálpað til við líkamlega sjúkdóma.
Þetta er mín túlkun á tíðni þessara nótna.
(Þetta eru hvorki staðhæfingar né sannreyndar staðreyndir, einungis túlkun á rannsóknum um heilandi hljóðtíðni).
Hugmyndin
528 Hz
528 Hz er ein umdeildasta tíðnin, er sögð vera kraftaverkatíðnin sem getur læknað huga og líkama.
741 Hz
741 Hz tengist tjáningu og lausnum, sem hjálpar okkur að opna huga okkar fyrir möguleikum.
639 Hz
639 Hz bætir tengsl okkar við okkur sjálf og tengsl við aðra.
396 Hz
396 Hz hjálpar okkur að losa okkur við sektarkennd og ótta.
852 Hz
852hz aðstoðar okkur við að bæta aðgengi okkar að hinu andlega eða háleita
417 Hz
417 Hz hjálpar okkur að auðvelda breytingar í lífi okkar.